Færsluflokkur: Tölvur og tækni
24.9.2010 | 10:17
Til hamingju með daginn vísindamenn!

15.9.2010 | 00:12
Undirbúningur Vísindavöku 2010 kominn á fullt

9.9.2009 | 09:46
Fjölbreytt og skemmtileg Vísindavaka í vændum
15.9.2008 | 22:07
Síðasti skiladagur í dag
2.9.2008 | 13:38
Hvern vilt þú tilnefna?
Verðlaun RANNÍS fyrir framlag til Vísindamiðlunar
Vísindamiðlunarverðlaun RANNÍS eru veitt einstaklingi fyrir sérstakt framlag til vísindamiðlunar. Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægi vísindamiðlunar fyrir samfélagið.
Verðlaun eru 500 þúsund krónur sem verða afhent á Vísindavöku 2008 sem er haldin á árlegum degi evrópskra vísindamanna föstudaginn 26. september.
Rannís óskar eftir tilnefningum um verðlaunahafa frá hvaða sviði vísinda, tækni og fræða sem er. Með framlagi til vísindamiðlunar er átt við sérstakt framtak sem miðar að því að auka skilning og áhuga almennings á öllum aldri á vísindum og nýsköpun og mikilvægi þeirra í nútímasamfélagi. Öllum er heimilt að senda inn tilnefningar til verðlaunanna.
Með tilnefningu skal fylgja lýsing á viðkomandi framlagi. Við val á verðlaunahafa verður lagt mat á brautryðjendastarf, frumleika og þann árangur sem viðkomandi einstaklingur hefur skilað til vísindamiðlunar.
Frestur til að skila inn tilnefningum er til 15. september 2008
Tilnefningum má skila til RANNÍS, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, eða með tölvupósti til alla@rannis.is merkt Vísindamiðlunarverðlaun.
Dómnefnd á vegum RANNÍS mun síðan fara yfir tilnefningarnar.
Tölvur og tækni | Breytt 3.9.2008 kl. 09:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vísindavaka verður haldin föstudaginn 26. september 2008 í Listasafni Reykjavíkur. Rannsóknamiðstöð Íslands, RANNÍS, stendur fyrir Vísindavöku en hún er haldin samtímis í helstu borgum Evrópu í tengslum við Dag vísindamannsins. Markmiðið með framtakinu er að færa vísindin nær almenningi, kynna manneskjurnar á bak við vísindin og vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi rannsókna- og vísindastarfs í nútímasamfélagi. Verður það gert með lifandi kynningum og boðið upp á skemmtilega og fræðandi viðburði fyrir alla fjölskylduna. Allar vísindagreinar eru kynntar á Vísindavöku, hugvísindi jafnt sem raunvísindi.
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 13:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)