30.9.2008 | 11:46
Aldrei fleiri á Vísindavöku
Vísindavaka Rannís var haldin föstudaginn 26. september sl. í Listasafni Reykjavíkur. Aldrei hafa fleiri gestir sótt Vísindavökuna, en um 2000 manns lögðu leið sína í Listasafnið til að hitta vísindamenn og kynnast viðfangsefnum þeirra. Við opnunina voru afhent verðlaun í teiknisamkeppni barna og ljósmyndasamkeppni unga fólksins þar sem efnið var Vísindin í daglegu lífi, auk þess sem viðurkenning Rannís fyrir framlag til Vísindamiðlunar var veitt. Að þessu sinni hlaut Örnólfur Thorlacius viðurkenninguna. Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís og Hellen M. Gunnarsdóttir deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu afhentu verðlaunin. Vísindavakan er haldin í tilefni af Degi Evrópska vísindamannsins og er hún haldin á sama tíma í helstu borgum Evrópu. Markmiðið með framtakinu er að færa vísindin nær almenningi, kynna manneskjurnar á bak við vísindin og vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi rannsókna- og vísindastarfs í nútímasamfélagi. Áhersla var lögð á lifandi kynningar og skemmtilega og fræðandi viðburði fyrir alla fjölskylduna. Rannís þakkar samstarfsaðilum, sýnendum, styrktaraðilum, gestum og öðrum þátttakendum. Sjáumst á Vísindavöku 2009!
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Menning og listir, Menntun og skóli, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:48 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.